Menningarhúsið Hof

Jón og séra Jón Vegna fjölda áskorana verður heimildarmyndin Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson endursýnd í Hofi, miðvikudagskvöldið 12. október kl.

Jón og séra Jón

Vegna fjölda áskorana verður heimildarmyndin Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson endursýnd í Hofi, miðvikudagskvöldið 12. október kl. 20.

Séra Jón Ísleifsson hefur verið sóknarprestur í Árnesi Ströndum í 12 ár. Hann lifir lífinu á sinn eigin sérstæða máta og af honum eru margar sögur bæði sannar og ósannar. Í kjölfar langvinnra deilna innan safnaðarins er svo komið að mikill meirihluti sóknarbarna hefur skrifað undir vantraust á séra Jón og lýst því yfir að þau vilji ekki að hann starfi lengur sem sóknarprestur í Árnesprestakalli.

Er séra Jón óhæfur prestur? Eða eru aðrir kraftar að verki? Hvað sem því líður er séra Jón maður sem er staddur á miklum tímamótum.

Jón og séra Jón er mynd sem beðið hefur verið! eftir. Hún hlaut áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2011.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf