Vegna fjölda áskoranna verður heimildarmyndin Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson endursýnd í Hofi,
miðvikudagskvöldið 12. október kl. 20.
Séra Jón Ísleifsson hefur verið sóknarprestur í Árnesi Ströndum í 12 ár. Hann lifir lífinu á sinn eigin
sérstæða máta og af honum eru margar sögur bæði sannar og ósannar. Í kjölfar langvinnra deilna innan safnaðarins er svo komið að
mikill meirihluti sóknarbarna hefur skrifað undir vantraust á séra Jón og lýst því yfir að þau vilji ekki að hann starfi lengur sem
sóknarprestur í Árnesprestakalli.
Er séra Jón óhæfur prestur? Eða eru aðrir kraftar að verki? Hvað sem því líður er séra Jón maður sem er staddur á miklum tímamótum.
Er séra Jón óhæfur prestur? Eða eru aðrir kraftar að verki? Hvað sem því líður er séra Jón maður sem er staddur á miklum tímamótum.
Jón og séra Jón er mynd sem beðið hefur verið! eftir. Hún hlaut áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2011.
