
Ljósin verða tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi næstkomandi laugardag, 26. nóvember. Dagskráin hefst klukkan 14:50
og stendur til að verða 16. En að dagskrá lokinni spilar Stórsveit Tónlistarskólans fjölbreytt jólalög í Hofi.
Gestir og gangandi eru velkomnir að líta við í Hofi og komast í hátíðarskap í upphafi aðventunnar. Allir velkomnir!
