
Laugardagskvöldið 27. nóvember kemur Baggalútur í allri sinni dýrð og flytur Norðlendingum fagnaðarerindi sitt. Ástsæl aðventulög, hátíðarsöngvar, nýárskveðjur og ýmsir smellir í bland ættu að tryggja að Akureyringar og nærsveitarmenn verði í sturluðum jólafíling langt fram á næsta ár.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við aukatónleikum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og aukatónleikarnir kl. 23.
Forsala aðgöngumiða í Hofi og í tenglinum hér að neðan.
