
Fyrirkomulagið verður svipað og undanfarin ár og er þetta jólagjöf þeirra til Akureyringa og nærsveitafólks.
Emblurnar syngja jólalög af ýmsu tagi, bæði íslensk og erlend og koma öllum í jólaskap.
Allir eru hjartanlega velkomnir að koma og njóta með þeim friðar og hátíðleika á aðventunni meðan húsrúm leyfir og er aðgangseyrir enginn.
