Menningarhúsið Hof

Jesús litli Besta leiksýning ársins 2010! Væntanleg í Hof í janúar á vegum Leikfélags Akureyrar! Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsveisla!

Jesús litli

Besta leiksýning ársins 2010! Væntanleg í Hof í janúar á vegum Leikfélags Akureyrar! Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsveisla!

Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll. Rómverjar hafa sölsað undir sig Palestínu og Heródes er settur landstjóri. Þegar spyrst út að frelsari muni fæðast í landinu gefur hann út tilskipun um að myrða skuli öll sveinbörn, tveggja ára og yngri. Ljótt er það. Og trúðarnir dásamlegu spyrja: Hver fæðir eiginlega barn inn í slíkt ástand? 

Jesús litli var ótvíræður sigurvegari Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar nú í vor. Jesús litli var valin sýning ársins og leikverkið sjálft var valið leikrit ársins auk þess sem sýningin hlaut sjö tilnefningar. Gagnrýnendur hlóðu sýninguna lofi og áhorfendur voru djúpt snortnir.  Sumsé: Leikhús eins og það gerist best!

Höfundar: Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson
Leikstjórn: Benedikt Erlingsson
Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing: Kjartan Þórisson
Tónlist: Kristjana Stefánsdóttir
 
Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir

           





moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf