
Sala á tónleikana Í minningu Vilhjálms Vilhjálmssonar hefur farið fram úr björtustu vonum. Miðasalan rauk af stað með miklum látum á fyrstu auglýstu tónleikana og var orðið uppselt þegar 45 mínútur voru liðnar frá opnun sölunnar. Ákveðið var að setja á aðra tónleika samdægurs og seldist einnig upp á þá. Þar sem eftirspurnin er ennþá til staðar hefur verið ákveðið að efna til þriðju tónleikanna!
AUKA-AUKATÓNLEIKAR SUNNUDAGINN 3. OKTÓBER KL. 17:00
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar höfum við ákveðið að bæta við þriðju tónleikunum sunnudaginn 3. október kl. 17:00 og verða það allra síðustu tónleikarnir. Miðasala hefst föstudaginn 17. september kl. 13:00 í Hofi, miðasölusími 450 1000 og einnig á vefnum okkar. Tryggið ykkur miða á þessa frábæru tónleika!
Í MINNINGU VILHJÁLMS VILHJÁLMSSONAR
Friðrik Ómar stóð fyrir uppsetningu þessa tónleika í Salnum í Kópavogi í lok mars 2008. Alls voru haldnir sex tónleikar en hætta þurfti fyrir fullu húsi þar sem Friðrik var í fullum undirbúningi fyrir þátttöku sína í Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva það árið. Tónleikarnir voru hljóðritaðir og gefnir út á geisladisk sama ár. Nú tveimur árum síðar hefur var ákveðið að flytja sömu dagskrá í nýju og glæsilegu menningarhúsi Akureyringa, Hofi. Flutt verða öll vinsælustu lög Vilhjálms af glæsilegu listafólki en kynnir og sögumaður verður Ómar Ragnarsson, vinur Vilhjálms.
Ásamt Friðriki kemur fram hljómsveit sem skipuð er eftirtöldum:
Gulli Briem - trommur
Halldór G. Hauksson - slagverk
Jóhann Ásmundsson - bassi
Pétur Valgarð Pétursson - gítar
Kristján Grétarsson - gítar
Kjartan Valdemarsson - píanó
Þórir Úlfarsson - hljómborð
Greta Salóme - fiðla
Alma Rut - raddir
Erna Hrönn - raddir
Regína Ósk - raddir
Guðrún Gunnarsdóttir - gestasöngkona
