Sala á tónleikana Í minningu Vilhjálms Vilhjálmssonar hefur farið fram úr björtustu vonum.
Miðasalan rauk af stað með miklum látum á fyrstu auglýstu tónleikana og var orðið uppselt þegar 45 mínútur voru liðnar frá opnun sölunnar.
Ákveðið var að setja á aðra tónleika samdægurs og seldist einnig upp á
þá. Þar sem eftirspurnin er ennþá til staðar hefur verið ákveðið að efna til þriðju tónleikanna!
AUKA-AUKATÓNLEIKAR SUNNUDAGINN 3. OKTÓBER KL. 17:00
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar höfum við ákveðið að bæta við þriðju tónleikunum sunnudaginn 3. október kl. 17:00 og verða það allra síðustu tónleikarnir. Miðasala hefst föstudaginn 17. september kl. 13:00 í Hofi, miðasölusími 450 1000. Einnig er hægt að kaupa miða á vefnum. Tryggið ykkur miða á þessa frábæru tónleika!
