
Leikhópurinn Silfurtunglið vinnur nú að uppsetningu á söngleiknum Hárinu sem verður frumsýnt í Hofi 15. apríl næstkomandi. Söngleikurinn er eftir þá James Rado og Gerome Ragni en tónlistin er eftir Galt MacDermot. Jón Gunnar Þórðarson leikstýrir Hárinu.
Sumarið er 1968, tónlistin er í loftinu og hermenn á leið í stríðið í Víetnam. Hárið er einn vinsælasti söngleikur alra tíma og verður nú í fyrsta sinn frumsýndur í atvinnuleikhúsi á Akureyri.
Fylgist með nánari fréttum um sýninguna á vefnum okkar og á Facebook síðu Hofs. Miðasala hefst 21. mars í Hofi og á www.menningarhus.is.
