
Sumarið er 1968, staðurinn er Central Park í New York. Við hittum fyrir Claude, saklausan sveitapilt frá Oklahoma sem er á leið á
herkvaðningarskrifstofuna til að ganga í herinn. Stríðið í Víetnam vofir yfir. Á leið sinni í gegnum Central Park kynnst hann hippunum
Berger og fleirum úr Hár-genginu. Vinahópurinn hefur ákveðið að berjast gegn stríði og óréttlæti í heiminum með
söng, ást og gleði.
Hárið er fyrsti stóri rokksöngleikurinn og hefur að bera mörg af þekktustu söngleikjalögum allra tíma, þar á meðal; Að
eilífu, Blikandi stjörnur, Lifi ljósið og titillag verksins; Hár!
Sýningin er sett upp af leikhópnum Silfurtunglinu, þar sem koma saman margir af bestu söngvurum landsins og ljá hrífandi persónum lífi með
leik og söng. Ekki missa af þessari einstöku sýningu - áhorfendur enda dansandi uppi á sviði með leikurum og fara heim með sól í
hjarta!
Hægt er að kaupa miða í sæti eða lautina en sama miðaverð er á báða staðina: sætin eru umhverfis sviðið en í lautinni
eru þægindin í fyrirrúmi á teppum og púðum í nánd við leikarana - áhorfandinn upplifir þannig hina sannkölluðu
„Woodstock“ stemningu.
Miðaverð er 3.950.-
MAKE LOVE NOT WAR
Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson
Leikmynd: R. Mekkín Ragnarsdóttir
Leikarar og söngvarar:
Berger: Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Claude: Matthías Matthíasson
Hud: Magni Ásgeirsson
Sheila: Jana María Guðmundsdóttir
Jeanie: Erna Hrönn Ólafsdóttir
Dionne: Ólöf Jara Skagfjörð
Voffi: Pétur Örn Guðmundsson
Hljómsveit:
Gítar: Hallgrímur Ingvi Jónasson
Bassi: Stefán Gunnarsson
Trommur: Valgarður Óli Ómarsson
Vinsamlegast athugið að sýningin er ekki við hæfi yngri barna.
