
Miðvikudagskvöldið 10. nóvember koma GRM fram í Hofi en það eru Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas. Samvinna þessarra þriggja landsþekktu, en í leiðinni gjörólíku manna sem aldrei hafa komið fram saman á tónleikum fyrr, verða mikil skemmtun enda þekktir fyrir frábærar lagasmíðar og textagerð.
Tónleikarnir eru til að fylgja eftir nýrri hljómplötu þeirra MS GRM sem kemur út um næstu mánaðamót.
Á tónleikunum ætla þeir að spila mörg af sínum þekktustu lögum ásamt hljómsveit sem skipuð er Magnúsi Ásvaldssyni trommuleikara, Albert Ásvaldssyni gítarleikara og Birgi Kárasyni bassaleikara.
