Menningarhúsið Hof

Góugleði Kvennakórs Akureyrar Kvennakór Akureyrar býður til Góugleði í Hömrum, Hofi laugardaginn 5. mars kl. 16. Kórinn ætlar eingöngu að flytja

Góugleði Kvennakórs Akureyrar

Kvennakór Akureyrar býður til Góugleði í Hömrum, Hofi laugardaginn 5. mars kl. 16. Kórinn ætlar eingöngu að flytja íslenska tónlist eftir ýmsa höfunda, svo sem Megas, Inga T. Lárusson, Atla Heimi Sveinsson og marga fleiri.

Einsöngvari með kórnum er Eyrún Unnarsdóttir mezzósópran og mun hún meðal annars syngja með kórnum Rósina eftir Friðrik Jónsson frá Halldórsstöðum að ógleymdri perlu Megasar, Spáðu í mig.

Þetta verður sannkölluð íslensk söngveisla, en einnig ætla kórkonur að brjóta dagskrána upp með stuttum sögum af gömlum hefðum og sögnum tengdar Góunni.

Stjórnandi og undirleikari er Daníel Þorsteinsson.

Miðaverð: 2.000 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf