Menningarhúsið Hof

Gestir út um allt Gestir út um allt er nýr skemmtiþáttur sem hóf göngu sína á Rás 2 sunnudaginn í lok janúar.  Þátturinn, sem verður á dagskrá síðasta

Gestir út um allt

Margrét Blöndal og Felix Bergsson
Margrét Blöndal og Felix Bergsson

Gestir út um allt er nýr skemmtiþáttur sem hóf göngu sína á Rás 2 sunnudaginn í lok janúar.  Þátturinn, sem verður á dagskrá síðasta sunnudag í mánuði, verður sendur út í beinni útsendingu af stóra sviðinu í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson taka á móti gestum ásamt hljómsveit Hjörleifs A. Jónssonar.

Það verða frábærir listamenn sem koma í heimsókn í Gestum út um allt sunnudaginn 29. maí og aðalgestir þáttarins verða Jón Ólafsson, Hildur Vala og Kammerkórinn Ísold.

Þá eru áhorfendur velkomnir í salinn í Hofi og munu taka virkan þátt í gleðinni.  Það kostar ekkert inn nema löngun til að hafa það skemmtilegt.

Gestir út um allt, síðasta sunnudag í mánuði frá 13-15 á Rás 2.




moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf