Menningarhúsið Hof

Gestir út um allt Skemmtiþáttur sendur út beint á Rás 2 af sviðinu í Hamraborg. Næsti þáttur fer fram sunnudaginn 26. febrúar kl. 12:45-15:00.

Gestir út um allt

Skemmtiþáttur sendur út beint á Rás 2 af sviðinu í Hamraborg. Næsti þáttur fer fram sunnudaginn 26. febrúar kl. 12:45-15:00.

Margrét Blöndal og Felix Bergsson umsjónarmenn þáttarins bjóða til sín góðum gestum. Tónlist, leikrit, leiknar auglýsingar, heimilisleg húsráð og óvæntar uppákomur eru á meðal dagskrárliða í þættinum og hljómsveit Hjörleifs Arnar Jónssonar verður að sjálfsögðu á sínum stað.

Aðalgestir þáttarins að þessu sinni verða Jónas Sig og Svavar Knútur. Marína Ósk Þórólfsdóttir kemur líka og syngur og svo ætlar Karlakór Dalvíkur að sjá til þess að fjöldasöngurinn muni hljóma vel.

Áhorfendur eru velkomnir í salinn til að taka þátt í gleðinni. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.





moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf