Menningarhúsið Hof

Gestir út um allt Skemmtiþáttur sendur út beint á Rás 2 af sviðinu í Hamraborg. Næsti þáttur fer fram sunnudaginn 29. janúar kl. 12:45-15:00.

Gestir út um allt

Skemmtiþáttur sendur út beint á Rás 2 af sviðinu í Hamraborg. Næsti þáttur fer fram sunnudaginn 29. janúar kl. 12:45-15:00.

Margrét Blöndal og Felix Bergsson umsjónarmenn þáttarins bjóða til sín góðum gestum. Tónlist, leikrit, leiknar auglýsingar, heimilisleg húsráð og óvæntar uppákomur eru á meðal dagskrárliða í þættinum og hljómsveit Hjörleifs Arnar Jónssonar verður að sjálfsögðu á sínum stað.

Aðalgestir þáttarins að þessu sinni verða Andrea Gylfadóttir og Valdimar Guðmundsson.

Áhorfendur eru velkomnir í salinn til að taka þátt í gleðinni. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf