
Laugardaginn, 4. september kl. 20 kemur danska Gáman tríóið fram í Hofi. Meginviðfangsefni þeirra er að tvinna saman gamla norræna alþýðutónlist og nýjar tónsmíðar. Þau hafa leikið víða á Norðurlöndum og vakið athygli fyrir einstaklega fallega og áhugaverða efnisskrá og heillandi hljóðheim.
