
Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi hvetur alla þá aðila sem hagsmuni hafa af flugi milli Norðurlands og Evrópu að mæta til fundar í Hofi fimmtudagskvöldið 13. janúar kl. 20.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Kynning á stöðu verkefnisins
Kynntar frumniðurstöður úr könnun RMF á ferðavenjum erlendra farþega Iceland Express á Akureyrarflugvelli sumarið 2010
Almennar umræður um næstu skref í myndun klasans
Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir!
