
Miðasala á afmælistónleika Friðriks Ómars 1.október hófst klukkan tíu í morgun og á tíu mínútum seldist upp á tónleikana. Bætt hefur verið við aukatónleikum klukkan 17.
Friðrik Ómar heldur uppá þrítugsafmælið sitt með stæl í Hofi og með honum verður einvalalið hljóðfæraleikara undir stjórn Þóris Úlfarssonar.
Einnig verða góðir gestir, samstarfsmenn Friðriks þau Guðrún Gunnarsdóttir, Regína Ósk og Jógvan Hansen. Von er á fleiri óvæntum gestum.
Skemmst er frá því að segja að Friðrik fyllti Hof í þrígang þessa sömu helgi fyrir ári síðan þegar hann
heiðraði minningu Vilhjálms Vilhálmssonar með glæsilegum tónleikum sem seint gleymast.
