Menningarhúsið Hof

Friðrik Ómar og Jógvan Hansen ferðast um landið Miðasala hefst í dag kl. 13 á tónleika söngvaranna Friðriks Ómars og Jógvans Hansens í Hömrum, Hofi,

Friðrik Ómar og Jógvan Hansen ferðast um landið

Miðasala hefst í dag kl. 13 á tónleika söngvaranna Friðriks Ómars og Jógvans Hansens í Hömrum, Hofi, fimmtudagskvöldið 23. júní kl. 20.

Þeir félagar eru á ferð um landið og halda tónleika á 24 stöðum á Íslandi í sumar en þetta verða áttundu tónleikar þeirra í ferðinni.

Efnisskrá þeirra félaga er lög af plötunni Vinalög sem inniheldur íslensk og færeysk dægurlög en plata þeirra varð mest selda platan á Íslandi árið 2009.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf