Menningarhúsið Hof

Franz Schubert: Die schöne Müllerin Benedikt Kristjánsson, tenórsöngvari og sigurvegari Alþjóðlegu Bach-keppninar í Greifswald og Bjarni Frímann Bjarnason

Franz Schubert: Die schöne Müllerin

Benedikt Kristjánsson, tenórsöngvari og sigurvegari Alþjóðlegu Bach-keppninar í Greifswald og Bjarni Frímann Bjarnason píanóleikari flytja ljóðaflokkinn Die schöne Müllerin í Hömrum, sunnudaginn 2. október kl. 17.

Báðir stunda þeir nám við Hanns Eisler tónlistarskólann í Berlín.

Ljóðaflokkurinn er ásamt Vetrarferðinni, sá frægasti sem Schubert samdi. Flokkurinn fjallar um ungan mann sem verður ástfanginn af Malarastúlku, og reynir með hjálp „vinar síns“, sem er Lækur, að heilla stúlkuna. Það reynist honum hinsvegar erfitt.

Bjarni og Benedikt hófu sitt samstarf í apríl á þessu ári. Þeir hafa sótt námskeið hjá hinum virta meðleikara Prof. Irwin Gage, og stefna á áframhaldandi samstarfi með honum. Þeir fluttu svo sína fyrstu tónleika í íslenska sendiráðinu í Berlín í júlí síðastliðnum, þar sem efnisskráin var samansett úr íslenskum lögum og Schubert.





moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf