Menningarhúsiğ Hof

Flakkið - nýr viðburður í sölu Flakkið er einstakur viðburður sem enginn listunnandi ætti að láta framhjá sér fara. Sýnt í Hömrum, Hofi 8. nóvember kl.

Flakkiğ - nır viğburğur í sölu

Flakkið er einstakur viðburður sem enginn listunnandi ætti að láta framhjá sér fara. Sýnt í Hömrum, Hofi 8. nóvember kl. 20.

Listamenn taka sig saman og rifja upp listasöguna í gegnum listmiðlana þrjá; tónlist, leiklist og myndlist.

Leikarar frá Silfurtunglinu og Leikfélagi Akureyrar leiklesa brot úr Villiöndinni eftir Henrik Ibsen, Fröken Júlíu eftir August Strindberg og Kirsuberjagarðinum eftir Anton Chechov. Nemendur Myndlistarskólans á Akureyri teikna upp leikmynd fyrir verkin og þeim varpað upp og nemendur úr Tónlistarskólanum á Akureyri leika tónlist í takt við verkin.

Flakkið er samstarfsverkefni Hofs, Silfurtunglsins, Leikfélags Akureyrar, Tónlistarskólans á Akureyri, Myndlistarskólans á Akureyri og Bandalags íslenskra leikfélaga.

Miðasala í Hofi en einnig er hægt að kaupa miða á vefnum.


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf