
Íslenski dansflokkurinn býður upp á bráðskemmtilega sýningu þar sem sýnd verða verk sem höfða til breiðs
áhorfendahóps í apríl.
Sýningin er ætluð allri fjölskyldunni og þess vegna býður Íslenski dansflokkurinn börnum sem eru 12 ára og yngri ókeypis inná sýninguna í fylgd með fullorðnum og 13-16 ára fá miðann á hálfvirði.
Einungis er hægt að bóka afsláttarkjör í miðasölu Hofs s. 450-1000 sem er opin alla virka daga kl. 13-19.
