Menningarhúsið Hof

Fjölskyldumorgunn í Hofi Ævintýrastemmning verður í Hofi sunnudaginn 6. febrúar nk. milli kl. 11 og 13. Börnum sem heimsækja Hof verður

Fjölskyldumorgunn í Hofi

Ævintýrastemmning verður í Hofi sunnudaginn 6. febrúar nk. milli kl. 11 og 13. Börnum sem heimsækja Hof verður boðið í ævintýraferðir í litlum hópum um húsið, þar sem eitt og annað kemur á óvart!

Dagskráin:

11:00-12:30 - Skoðunarferðirnar hefjast í Hömrum og farið verður með börnin í litlum hópum um húsið

12:30-13:00 - Stelpurnar í Kammerkórnum Ísold syngja fyrir gesti undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar

Hvetjum allt til þess að mæta. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir!

Sama dag ætlar leikskólinn Lundarsel að vera með sýningu á afrakstri álfa- og tröllþema barnanna, í tilefni á degi leikskólans sem 6. febrúar, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er fjórða árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan.

 



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf