Menningarhúsið Hof

Færeysk lúðrasveit og TA Um helgina er færeysk lúðrasveit væntanleg til Akureyrar. Nemendur úr Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri ætla að æfa með

Færeysk lúðrasveit og TA

Um helgina er færeysk lúðrasveit væntanleg til Akureyrar. Nemendur úr Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri ætla að æfa með lúðrasveitinni og sveitin, þá skipuð um 100 hljóðfæraleikurum, spila saman á tónleikum í Hamraborg í Hofi laugardaginn 2. apríl kl. 21:00. Allir velkomnir og frítt inn.

Þess má til gamans geta að fyrrum stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Bernharður Wilkinson, ætlar að taka að sé að stjórna þessari risasveit og fróðlegt verður að sjá hvernig til tekst.

Ástæðan fyrir komu Færeyinganna er verkefni sem Tónlistarskólinn á Akureyri er að vinna í samstarfi við Tónlistarskóla Færeyja en í maí næstkomandi þá fara Stórsveit og Grunnsveit Tónlistarskólans á Akureyri í heimsókn til Færeyja til að spila á færeyskri tónlistarhátíð. Þar mun Stórsveitin spila í Norræna húsinu í Þórshöfn með færeyskri jazz-sveit og Grunnsveitin spilar svo með sambærilegri færeyskri sveit.


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf