Menningarhúsið Hof

Bláa gullið Leiksýningin Bláa gullið kemur í Hof!  Trúðarnir spræku sem fræddu og skemmtu yfir 3.000 börnum í Borgarleikhúsinu síðasta vetur eru á

Bláa gullið

Leiksýningin Bláa gullið kemur í Hof!  Trúðarnir spræku sem fræddu og skemmtu yfir 3.000 börnum í Borgarleikhúsinu síðasta vetur eru á leiðinni norður. 

Sýningin hlaut mikið lof gagnrýnenda sem og áhorfenda og var tilnefnd til Grímuverðlauna sem besta barnasýningin síðasta vetur. Þrír trúðar leiða áhorfendur um undraheima vatnsins og bregða sér í hlutverk vatnsmólikúls sem fer víða – frýs í jökli, flækist um garnir risaeðlu og gufar upp.

Ragnhildur Gísladóttir tónlistarmaður og Gjörningaklúbburinn skapa sýningunni töfrandi umgjörð með nýstárlegri hjóð- og sviðsmynd.

Leikstjóri: Charlotte Böving.

Leikarar: María Pálsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Víkingur Kristjánsson.

Höfundar eru leikstjóri og leikarar.

Sýningin er sett upp í samstarfi við Borgarleikhúsið.

Norðuorka, Rarik, KEA og Flugfélag Íslands styrkja sýninguna í Hofi.

Aðstandendur sýningarinnar hafa ákveðið að bjóða 2 fyrir 1 af miðaverði á almennu sýninguna. Athugið að einungis er hægt að bóka tilboðið í miðasölu Hofs í s. 450 1000, miðasalan er opin virka daga 13-19.

 



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf