Menningarhúsið Hof

Dúndrandi stemmning á tónleikum SN Frábær stemning var á tónleikum helgarinnar í Hofi 5. febrúar síðastliðinn. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og

Dúndrandi stemmning á tónleikum SN

Frábær stemning var á tónleikum helgarinnar í Hofi 5. febrúar síðastliðinn. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Dúndurféttir stilltu saman strengi sína og fluttu The Wall. Karlakór Dalvíkur og stúlknakór létu ekki sitt eftir liggja og öllum þessum hóp stýrði Guðmundur Óli Gunnarsson.  Ekki má gleyma að minnast á tækniliðið sem svo sannarlega kunni sitt fag bæði hvað varðar hljóð og ljós. Það komust færri að en vildu en uppselt var á tvenna tónleika kl. 20 og 23.  


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf