Menningarhúsið Hof

Diskóeyjan mætir aftur í Hof á nýju ári Laugardaginn 29. janúar kl. 15 mætir Diskóeyjan að nýju í Hof. Þetta er stórskemmtileg fjölskylduskemmtun þar sem

Diskóeyjan mætir aftur í Hof á nýju ári

Laugardaginn 29. janúar kl. 15 mætir Diskóeyjan að nýju í Hof. Þetta er stórskemmtileg fjölskylduskemmtun þar sem einvala lið tónlistarmanna og sérlega glæsilegir búningar gleðja bæði unga sem aldna.

Óttar Proppe, Páll Óskar, Sigtryggur Baldursson og meðlimir Memfismafíunnar ásamt fríðu föruneyti flytja fönkóperuna Diskóeyjan af samnefndri nýútkominni plötu.

Inniheldur m.a. ofursmellinn „Gordjöss“ og diskóslagarann „Dýrin á Diskó“ ásamt fjölmörgum öðrum sjóðheitum fönk- og diskóslögurum fyrir alla fjölskylduna. Auk þess verða tekin lög af barnaplötunni sívinsælu „Gilligill“ sem kom út fyrir tveimur árum og gerð af sama hópi.

Lög og textar eftir Baggalútinn Braga Valdimar Skúlason.

Miðasala er hafin hér. Hlökkum til að sjá ykkur!



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf