
Sunnudagin 17. október kl. 13:30 fer fram menningarhátíð barna í Hofi undir yfirskriftinni Börn fyrir börn. Að hátíðinni koma fjölmargir aðilar sem vinna að menningarstarfi barna á Eyjafjarðarsvæðinu: Tónlistarskólinn á Akureyri, Point Dance Studio, Tónræktin, Barnakórar Akureyrarkirku, Kór Hrafnagilsskóla, Leiklistarskóli LA, ásamt fjölmörgum grunnskóla og leikskólanemendum.
Fram koma börn sem leggja stund á hinar ýmsu listgreinar ásamt listamönnum af svæðinu og sérstökum gestum á borð við Lay Low, Eyþór Inga Gunnlaugsson og Jönu Maríu Guðmundsdóttur. Kynnir verður Gréta Kristín Ómarsdóttir.
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis, en tekið verður við frjálsum framlögum og renna þau óskipt til Hetjanna, félags langveikra barna á Norðurlandi.
Hægt verður að nálgast miða í miðasölu Hofs frá og með föstudeginum 8. október.
