Menningarhúsið Hof

Þorrinn fer vel af stað Nú er fyrsti dagur þorra sem einnig er nefndur bóndadagur. Menningarhúsið Hof mælir með kraftmiklum tónleikum Fjallabræðra um

Þorrinn fer vel af stað

Nú er fyrsti dagur þorra sem einnig er nefndur bóndadagur. Menningarhúsið Hof mælir með kraftmiklum tónleikum Fjallabræðra um helgina, laugardagskvöldið 21. janúar kl. 20. 

Hljómsveitin samanstendur af um það bil fimmtíu manna karlakór og rokkhljómsveit og síðast en ekki síst fallegasti Fjallabróðirinn og Akureyramærin, Unnur Birna (Bassa) Björnsdóttir á fiðlu og söng.

Karlakórinn er semsagt ekki kór í sinni einföldustu mynd, en þeir sem hafa gert sér væntingar um slíkt verða þó ekki fyrir vonbrigðum!

Nánari upplýsingar í miðasölu Hofs og hér.


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf