
Margir muna eflaust eftir þáttum Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, sem voru á dagskrá RÚV í þrjá vetur en þættirnir nutu fádæma vinsælda. Síðastliðna vetur hefur Jón boðið til sín góðum gestum á sviðið í Salnum í Kópavogi við fádæma undirtektir. Nú kemur hann loks í Hof og gestur hans að þessu sinni verður Páll Óskar.
