Menningarhúsið Hof

Aðventuveisla SN Á aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða einsöngvarar með hljómsveitinni systkinin Diddú og Páll Óskar.

Aðventuveisla SN

Á aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verða einsöngvarar með hljómsveitinni systkinin Diddú og Páll Óskar.

Einnig kemur fram á tónleikunum stúlknakór og sérstakur gestur tónleikanna er hörpuleikarinn Monika Abendroth en hún og Páll Óskar hafa starfað saman um árabil. Á efnisskrá tónleikanna verður jóla- og aðventutónlist.

Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Aukatónleikar sunnudaginn 5. desember eru komnir í sölu.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf