Flýtilyklar
2012-2013
Homo Erectus – Pörupiltar standa upp!
Frumsamin ljóð, óskiljanleg töfrabrögð, þrælæfð dansatriði, ástir og örlög, æðruleysi, atvinnuleysi, umbreyting, pjásur og pælingar, tilgangur lífsins, tilvistarkreppa mannsins, taktföst tónlist, heimspeki, heilabrot og daður dauðans!
Pörupiltarnir eru nú mættir í Hof eftir að hafa slegið í gegn í Þjóðleikhúskjallaranum sl. vetur í UPPNÁMI.
Pörupiltar: Sólveig Guðmundsdóttir, Alexía Björg Jóhannesdóttir og María Pálsdóttir.
Gagnrýni:
"ÆTLAÐI MIG LIFANDI AÐ DREPA ÚR HLÁTRI" S.A. TMM
"FRÁBÆR SKEMMTUN Í ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANUM" E.B. FRÉTTABLAÐIÐ.
“ÉG HLÓ SVO MIKIÐ AÐ ÉG VAR HÁS DAGINN EFTIR" H.A.H. Listpóstinum.
"SÓLVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR, ALEXÍA BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR OG MARÍA PÁLSDÓTTIR LÉKU KARLANGANA OG RÚLLUÐU UPP SALNUM MEÐ FRAMMISTÖÐU SINNI. " E.B. Fréttablaðið.




