Flýtilyklar
Verð:
2.500 kr.
Salur:
Hamrar
Dagsetning:
20.10.2012
Tími:
16:00
U.
2012-2013
Gissur Páll og Árni Heiðar
Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari og Árni Heiðar Karlsson píanisti hófu samstarf sitt árið 2008 og hafa síðan þá komið fram á fjölmörgum tónleikum.
Nú leiða þeir saman hesta sína með flutningi á íslenskum einsöngslögum þar sem áhersla er lögð á að leiða hlustandann inn í heim túlkandanns og nálgast tónlistina frá sjónarhorni flytjendanna. Dagskráin miðar að því að auka nálægð flytjenda og verkanna við hlustendur með áhugaverðum kynningum sem veita innsýn inn í tónlistarlegan heim sönglanna.
Á dagskránni verða fjölmörg þekkt einsöngslög eins og Draumalandið, Í fjarlægð, Hamraborgin og fleiri perlur íslenska sönglagasafnsins.




