Gestir út um allt

Menningarhúsið Hof

Gestir út um allt
Verð: kr.
Salur: Hamraborg
Dagsetning: 30.09.2012
Tími: 12:45

2012-2013

Gestir út um allt

Gestir út um allt er skemmtiþáttur á Rás 2 sem er sendur út í beinni útsendingu af stóra sviðinu í Hofi. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson taka á móti gestum ásamt hljómsveit Hjörleifs A. Jónssonar.

Frábærir listamenn koma í heimsókn og áhorfendur eru velkomnir í salinn í Hofi til þess að taka virkan þátt í gleðinni. Það kostar ekkert inn, nema löngun til að hafa það skemmtilegt.

Aðalgestir þáttarins verða Selma Björnsdóttir og Jón Jónsson.

Meðal dagskrárliða eru óvæntir leikþættir, leynigestir og leiknar auglýsingar, húsráð frú Blöndal, leikir með áhorfendum í sal og tónlist í öllum regnbogans litum.

Það verður sungið og trallað, leikið og spjallað og Gestir út um allt, sunnudaginn 26. ágúst frá klukkan 12.45-15 á Rás 2.

Svæði

Menningarhúsið Hof

Önnur starfsemi í Hofi

Ráðstefnur og fundir

Strandgötu 12
600 Akureyri, IS
Miðasölusími: +354 450 1000
Skrifstofa: +354 450 1010 
Opnunartími miðasölu

midasala@menningarhus.is
info@menningarhus.is