Flýtilyklar
SN & DÚNDURFRÉTTIR
Uppselt var á tvenna tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Dúndurfrétta í Hofi laugardagskvöldið 5. febrúar 2010. Á tónleikunum var The Wall eftir Roger Waters og Pink Floyd flutt. Að auki tók Karlakór Dalvíkur og stúlknakór skipuð m.a. nemendum úr Tónlistarskólanum á Akureyri þátt í uppfærslunni. Útsetning er eftir Harald Vigni Sveinbjörnsson. Stjórnandi SN er Guðmundur Óli Gunnarsson. Ljósmyndir frá tónleikum og æfingu: Þórgnýr Dýrfjörð og Ragnar Hólm Ragnarsson.
