Flýtilyklar
Pétur og úlfurinn
Í lok október flutti Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ævintýrið um Pétur og úlfinn eftir Sergei Prokofieff í Hofi. Verkið var sviðsett með leikbrúðum og sett upp í samstarfi við Brúðuheima í Borgarnesi og Leikfélag Akureyrar. Leikbrúðustjórnandi var Bernd Ogrodnik, leikstjóri Jana María Guðmundsdóttir og sögumaður Guðmundur Ólafsson. Stjórnandi var Guðmundur Óli Gunnarsson. Öllum nemendum í 1.-5. bekk á svæði Eyþings var boðið á tónleikana, en Eyþing er aðalstyrktaraðili verkefnisins. Ljósmyndir: Menningarhúsið Hof og Skapti Hallgrímsson.
