Flýtilyklar
Aðventuveisla SN
Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands voru afar hátíðlegir og skemmtilegir. Einsöngvarar með hljómsveitinni voru systkinin Diddú og Páll Óskar en þetta var í fyrsta skipti sem þau halda sameiginlega tónleika. Á tónleikunum kom einnig fram stúlknakór og sérstakur gestur tónleikanna var hörpuleikarinn Monika Abendroth. Stjórnandi var Guðmundur Óli Gunnarsson. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.
